Leita í fréttum mbl.is

Færsluflokkur: Almennt raus

Skilaboð skolast til áhafnar

SKILABOÐ SKIPSTJÓRA TIL 1. STÝRIMANNS:

Snemma í fyrramálið, klukkan 9:00 verður almyrkvi á sólu. Þar sem þetta er ekki daglegur viðburður skal áhöfnin klæðast sínum bestu fötum, raða sér upp úti á þilfari og fylgjast með þegar sólin hverfur. Ég mun sjálfur útlista þennan merka atburð fyrir áhöfninni. Ef það rignir er hætta á að okkur auðnist ekki að sjá þegar sólin hverfur og fari svo skal áhöfnin koma saman í matsalnum.

SKILABOÐ 1. STÝRIMANNS TIL 2. STÝRIMANNS:

 Samkvæmt skipun skipstjórans verður snemma í fyrramálið, klukkan 9:00, almyrkvi á sólu. Ef það rignir munum við ekki sjá sólina hverfa á þilfarinu í okkar bestu fötum. Fari svo munum við fylgjast með þessu merka fyrirbæri í matsalnum. Þetta er ekki daglegur viðburður.

SKILABOÐ 2. STÝRIMANNS TIL 3. STÝRIMANNS:

Samkvæmt skipun skipstjórans munum við fylgjast með, í okkar bestu fötum, þegar sólin hverfur í matsalnum klukkan 9:00 í fyrramálið. Skipstjórinn mun sjálfur útlista fyrir okkur hvort það fari að rigna. Þetta er ekki daglegur viðburður.

SKILABOÐ 3. STÝRIMANNS TIL BÁTSMANNS:

Ef það rignir í matsalnum snemma í fyrramálið, sem er ekki daglegur viðburður, mun skipstjórinn, í sínum bestu fötum, hverfa klukkan 9:00

SKILABOÐ BÁTSMANNS TIL ÁHAFNAR:

Snemma í fyrramálið, klukkan 9:00, mun skipstjórinn hverfa. Því miður er þetta ekki daglegur viðburður.


Skyldulesning !!

Kaloría

Spurning......

ZWANI.com - The place for myspace comments, glitters, graphics, backgrounds and codes

Jóla jóla jóla

jólapakkarEftir vinnu í dag fór ég með jólagjafirnar (næstum allar) sem ég verslaði um helgina, uppí sveit þar sem þeim var pakkað inn !!  Ég er næstum því búin að klára þetta jólapakkainnpökkunarvesen þetta árið LoL  Það er ekkert smá ljúft.......bara nokkrir eftir í innpökkun og 2 í innkaupum og þá er ég búin !!!  Hef aldrei verið jafn snemma í þessu Wink 

Það vantaði eitthvað í stemninguna þegar við Árný vorum að pakka inn þannig að ég plataði hana til að kveikja á jólatónlist hehehe LoL



48 dagar til jóla !!!  jólasmiley

2 færslur á 2 dögum.....

Þetta stefnir bara í stórmet !!  LoL

Ég reif mig uppúr hlýja bólinu mína eldsnemma í morgun......fór og sótti Villa sem kom með mér, fór og tók bensín og var löggð af stað til Akureyrar rétt fyrir 7:30.  Keyrði varlega þar sem skyggnið var ekkert alltof gott, + það að gatan var ísilöggð.
Vorum rétt komin inná Akureyri þegar Anna Kristín (stöðvarstýran) hringir og segir okkur bara að fara í Kristjáns bakarí, setjast niður og bíða eftir að hún komi, okkur liggi ekkert á þar sem fyrra námskeiðinu var frestað !!! (fullt af ljótum orðum)
Þannig að við 4 sem fórum á námskeiðið af okkar stöð, þurftum að finna eitthvað til að drepa tímann með.....ekki var hægt að fara í Bónus þar sem það opnar ekki fyrr en 12.  Ákváðum að fara í Rúmfatalagerinn.....neinei, breyttur opnunartími síðan í september (sýnir hvað maður fer oft þarna eða þannig hahaha), og opnar ekki fyrr en 11.  Þannig að við röltum útum allt Glerártorg........kaffihúsið, Nettó, út af svæla og svo loksins opnaði Rúmfó.  Okkur tókst öllum að finna eitthvað smotterí, misjafnlega mikið smotterí að vísu en burrinn minn rúmaði það alveg LoL
Fórum svo á Greifann í hádeginu í boði fyrirtæksins og hittum þar fólk af hinum stöðvunum, Húsavík, Sauðárkróki, og stöðvunum á Akureyri.  Förum á námskeiðið í umhirðu matvæla, um gerla og bakteríur og svoleiðis og það var bara þrælgaman og fullt af fróðleik.
Svo var auðvitað nauðsynlegt að ljúka Akureyrarferðinni á að versla meira í Bónus....... Smile
Þannig að dagurinn var alls ekkert slæmur........mér finnst amk ekkert leiðinlegt að vera á launum í 10 tíma fyrir að fara á námskeið í nokra tíma......og versla á launum í þokkabót !  Bara gaman að því Smile

Kíktum svo á Árný í sveitina í bakaleiðinni, sátum og bulluðum helling og plönuðum áramótaferðina okkar í bústaðinn, það verður hriiiiiiiiikalega gaman !!

Ætla að koma mér í bælið, mér er alveg ógó kalt.
Farið vel með ykkur darlings.......þar til næst Cool

Léleg að blogga ??

Já ég get alveg viðurkennt það að bloggandinn hefur ekki verið uppá sitt besta undanfarið.  Það er bara einhver veginn þannig að þegar dagarnir snúast alltaf um það sama, þá finnst manni ekkert markvert til að blogga um.

Á föstudaginn fórum við í bæinn.  Fékk að hætta aðeins fyrr í vinnunni til að klára að pakka niður fyrir okkur gaurana, og svo gátum við laggt af stað strax eftir að ég var búin að sækja Matthías og Viktor Óla á leikskólann.  Mitt erindi var að versla og þeirra að fara til pabba síns.  Stoppuðum í Hreðarvatnsskála til að spræna og þarf sem ég var eitthvað agalega mikið að drífa mig þegar við fórum þá gleymdi ég að taka eitthvað með til að drekka.  Keypti þar af leiðandi dýrustu ávaxtadrykki sem ég hef verslað.  3 stk Frissa fríska fernur.....á 120 krónur stykkið !!  Það auðvitað hrökk ofan í mig þegar ég heyrði verðið og stelpan segir við mig að það sé svo dýrt að flytja þetta til þeirra og eitthvað blablabla.  Ég sagði við hana að ég byggi nú á Blönduósi sem væri töluvert lengra í burtu, og ekki væri ég að kaupa svala þar á 120 kall !  "já en þetta er nú veitingahús......"  Mér er bara slétt sama, þetta er ekkert nema okur !!

American StyleEftir að pabbi þeirra hafði tekið við þeim þá brunaði ég (á löglegum hraða þó) inní Hafnarfjörð þar sem "Stællinn" beið eftir mér.........var orðin sársvöng í bumbunni minni.  Fékk mér alveg svaðalega góðan beikonborgara með auka salati "on the side".....BARA gott LoL   "Stællinn" klikkar aldrei.....eða svo hélt ég.......komum að því síðar.

Fékk svo gistingu í Hafnarfirðinum og hafði það náðugt um kvöldið.  Vaknaði svo um 9 leytið næsta morgun og fór að skrölta af stað í búðarráp rétt fyrir 10.  Átti erindi í framköllunarverslun í bláu húsunum þarna niðri í Skeifu.......Fákafen/Faxafen....eitthvað svoleiðis.  Mér til skapraunar komst ég að því að þar opnaði ekki fyrr en 11.  Fór þá í Kringluna á meðan þar sem ég þurfti í Farsímalagerinn.  Og þar sem hann er staðsettur þar í sama rými og Hans Petersen, þá fór ég bara með filmuna þangað Smile  
Ég á einhvers staðar hérna mynd af okkur Guðrúnu, Magga og Berta sem var tekin þegar við vorum öll uppstríluð að fara á reunion "95, en ég finn hana hvergi nokkurs staðar !  En merkilegt nokk, ég fann filmuna Grin   Þannig að í eftirprentun fór hún. 

Toys 'R' Us Eftir að vera búin að skilja filmuna eftir og kaupa mér Bluetooth tæki, þá lá leið mín í Toys 'R' Us.
Kom þangað rétt eftir opnun þannig að traffíkin var nú ekkert svakaleg, en þegar ég fór var þetta bara orðið hellingur af fólki.  Þetta tekur alveg ágætis tíma, svona þegar maður er að skoða í fyrsta sinn.......fyrst að rölta og sjá, síðan að kíkja hvað gæti verið vænlegt í jólagjafir.....síðan að finna þær.  Mér finnst vanta alveg þarna skilti í loftin eða eitthvað sem aldurstiltaka hvern gagn fyrir sig skiljiði.  Ég hefði getað keyp og keypt fyrir Viktor Óla (15 mán) .......hellingur þarna af dóti fyrir hans aldur og yngra.  Matthías (5 ára) hefði líka getið komið vel útúr þessu, slatti til fyrir hans aldur.  En fyrir Þorstein (10 ára).....jújú ég sá helling sem hann hefði viljað fá, en veskið mitt hefði þurft að vera talsvert þykkara fyrir svoleiðis.  Mér tókst nú samt að finna allar stubbajólagjafirnar nema 3 þarna og undir 20 þús kalli, mér finnst það ágætlega sloppið Smile

Fór svo með nýkeypta dótið í bílinn eftir að hafa staðið slatta í biðröð við kassann.  Náði einhvern veginn að skáskjóta mér á milli bílanna án þess að brjóta dótið eða rispa bílana.
Síðan snéri ég við og kíkti í Pier, nýju verslunina sem er þarna við hliðina.  Ferlega sæt verslun, náði að versla nokkrar gjafir þar fyrir ellismellina sem fá pakka frá mér  LoL
Fór svo aftur í Kringluna og sótti myndirnar og fór svo heim til Berta þar sem við og mamma hans sátum fram á kvöld og spjölluðum.  Ofsalega gott að koma þangað, mikið hlegið og mikið rifjað upp, ég hugsa að þetta verði svona home away from home eftirleiðis þegar ég fer suður Smile

Og af því að ég er algjör þumbi og gleymi stundum að borða......þá var ég orðin agalega svöng í bumbunni minni þegar ég fór frá Berta og Ólu.  Ákvað því að kíkja aftur á Stælinn........svona fyrst hann er nú svona nálægt gististað mínum hvort eð er Wink   Í þetta sinn varð steikin fyrir valinu.  Ég bað um hana medium rare og auka sósu með.  Ekkert mál.  Síðan kemur steikin, og auka sósa í lítilli könnu.  Steikin var well done !  Alltof mikið steikt !  Þannig að ég kalla í þjóninn sem var þarna og bið hann að láta redda þesu, þetta sé ekki það sem ég bað um.  Hann tekur diskinn og það tók dágóðann tíma að fá nýja steik.  Ef ég hefði ekki pantað auka salat eins og ég geri stundum, þá hefði ég hreinlega andast úr hungri !  Síðan kemur hann með diskinn........og bara steikin hafði verið tekin af.  Frönskurnar sem ég hafði verið búin að salta voru þarna ennþá, kaldar, og engin sósa.  Hann segir mér að sósan komi eftir smá stund, ég geti þá bjargað mér með aukasósunni á meðan.  Ég benti honum pent á að sú sósa væri búin að standa á borðinu og væri orðin köld.  Hann tekur hana líka og loksins fékk ég matinn minn........með afsökunarbeiðni og óumbeðnum upplýsingum um það að kokkurinn sé pólskur og skilji greinilega ekki hvað hafði verið beðið um......pólverjar séu líklega ekki vanir því að borða blóðugt kjöt.  Ég segi fyrir mína parta.......það er pólsk kona að vinna í eldhúsinu hjá okkur og hún er vel starfi sínu vaxin.  Ef það koma einhverjar séróskir þá segjum við henni það og útskýrum betur ef hún skilur það ekki.  Mig varðaði bara ekkert um það að kokkurinn væri pólskur, það átti ekkert að bitna á steikinni minni.
Eftir að ég var búin að svolgra í mig matnum (sem var ágætur með réttri steik) þá talaði ég við rekstrarstjórann og spurði hana hvort þau ætluðu ekkert að bæta mér þetta upp, og segi henni málavöxtu.  Ef að við klúðrum einhverju svona í minni vinnu, þá fær viðkomandi matinn sinn greiddann til baka og einhvers konar bætur, á inni máltíð eða eitthvað álíka.  Og maturinn er gerður ALLUR frá grunni, ekki bara partur af disknum og restin látin kólna á meðan.
Anyhow.......ég á inneign þarna núna uppá 2 steikur.  Stællinn hefur aldrei klikkað, fyrr en þarna.

Þar sem ég var útkeyrð eftir verslunarferðina þá var ég ekki að nenna að keyra heim þarna um kvöldið og fór því aftur inní Hafnarfjörð og lá eins og klessa fyrir framan imbann og horfði á dvd.
Laggði svo af stað um 11 leytið í morgun heim aftur.  Varð að kíkja í Bónus í Borgarnesi og versla smá, ætlaði þar inn til að keupa bleyjur fyrir Viktor Óla en tegundin ekki til.......fór samt út með vörur fyrir rúmlega 7000 kall LoL   Þar af 6 kippur af 2ja lítra Kók Zero........ekki allt fyrir mig sko hahaha Smile   Flaskan á 59 krónur þannig að maður byrgir sig að sjálfsögðu upp Tounge

5 ferðir tók til að tæma bílinn, og svo var brunað í sveitina þar sem Árný var nánast búin að hakka það sem hakkað varð af folaldinu mínu.  Kláruðum að verka það, og núna er ég með fullt fullt af hakki, gúllasi, steikum og meiri steikum af folaldi í kistunni minni Tounge   Tók smá bita til að eta og meeeeennnnnnnn, hvað það var gottttttttt !!!!  Jömmmmmmmý !

Ætlaði svo að vera löngu farin að sofa þar sem við þurfum nokkur að mæta á námskeið á Akureyri á morgun á vegum vinnunnar.  Meðferð matvæla annars vegar og samskipti á vinnustað hins vegar minnir mig.  Fyrra námskeiði byrjar klukkan 9:30 þannig að það er eins gott að leggja snemma af stað. 

Meira af því annað kvöld...................þar til næst.........take care luvs Heart

Komin heim

Ég kom heim núna í kvöld eftir að hafa farið suður í útför Magga.  Þetta var ofsalega falleg og látlaus athöfn.  Ég ætla svo að fara suður núna í byrjun nóv. og hitta Guðrúnu og Berta aftur við aðrar aðstæður.
Árný frænka hélt öllu gangandi hérna á meðan, þúsund þakkir ljúfust fyrir allt InLove

Í morgun fékk ég klikkaða hugmynd og langar að bera hana undir ykkur.
Mig vantar pening fyrir ákveðinn atburð.......og datt í hug, að ef ég saumaði svona skó, setti þau nöfn og þær dagsetningar sem fólk bæði um, haldiði að það yrði grundvöllur fyrir því að selja þá ?  Sem afmælis/skírnar/sængur/jóla gjöf td. ?  Mynduð þið kaupa svona til að gefa ??
Þetta er talið út, myndin sjálf er ca 20x20 cm, þessir rammar eru 30x30.  Þær yrðu rammalausar þó, þannig að fólk gæti sjálft valið ramma sem þeim finnst henta.
Endilega segið mér hvað ykkur finnst.........er ég endanlega gengin af göflunum ?? Tounge
Smelltu á myndina til að sjá hana skýrari.

baby shoes

Hann bítur fast....

...hann kuldaboli !!  Jeminn einasti hvað er kalt akkúrat núna í þessu fjandans roki !  Nei ekki roki......hvassviðri Wink

Er búin að hafa það ágætt um helgina.  Fór með strákunum í sveitina á laugardaginn og við komum okkur bara vel fyrir og vorum þar fram yfir kvöldmat í boði hússtýrunnar.  Hún var með nokkur börn í fóstri þann daginn og nóttina á eftir, svona eins og 5 stk., þannig að það munaði nú ekki mikið um okkur hahaha Tounge

Svo fórum við í 1 árs afmæli á Króknum í gær.....og þar fékk ég bestu súpu sem ég hef smakkað í laaaaangan tíma, sæta kartöflusúpu.  Hún er alveg svaðalega góð Smile
Skemmtilegt að hafa svona krílaafmæli í hádeginu, með súpu og brauð í boði, og svo kökutertum á eftir, alveg frábært Smile

Annars er lítið að frétta, strákarnir hafa það fínt.  Þorsteinn hefur nóg að gera í skólanum, Matthías fer að byrja í skólahópnum á leikskólanum, og Viktor Óli bara stækkar og stækkar Smile   Er að fá 7undu tönnina, segir fullt (sem kannski bara ég skil) og er ferlegur frekjudallur....hann hefur það ekki frá mér, ég á alla mína frekju óskerta Wink

Fer suður eftir vinnu á miðvikudaginn..........Maggi verður jarðaður á fimmtudaginn Frown
Takk fyrir falleg orð í síðasta innleggi.

Kv. Gerða

Jammogjæja !

Komiði sæl börnin góð Smile

Jæja, þetta er allt að skána, strákarnir mínir komu heim seinni partinn í gær eftir helgardvöl hjá karli föður þeirra.  Ofsalega gott að fá þá heim aftur og fá knúsin......bara gott.  Notaði helgina í að gera allt annað en ég ætlaði mér....sökum veðurs !  Það var allt alhvítt hérna á laugardagsmorguninn og mín á sumartúttunum, þannig að ekki var farið á Krókinn eins og til stóð.   En skemmti mér engu að síður ferlega vel Smile

Stenna mín er byrjuð aftur í vinnunni eftir 4 mánaða fjarveru.  Alveg meiriháttar að fá hana aftur Smile

En........annars lítið að frétta, er sybbin og ætla að fara að halla mér, heyri í ykkur síðar Smile

« Fyrri síða | Næsta síða »

Ég heiti...

Gerða Kristjáns
Gerða Kristjáns
"Gættu þess að segja stundum eitthvað fallegt við vini þína, eitthvað sem kemur beint frá hjartanu."

Nafnlausum athugasemdum verður eytt !

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.1.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 3
  • Frá upphafi: 130570

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband