Leita í fréttum mbl.is

Hvað er að gerast ? :)

Hef ekki sett færslu hérna inn í 4 ár, en allt í einu er umferðin um síðuna alveg svakaleg........hverju veldur ? :)
Bara gaman að þessu samt sem áður :) :)

Kleppur Hraðdeild góðan dag !

Það var hringt í mig í vinnuna áðan af leikskólanum, og það þýðir bara eitt:

Viktor Óli er orðinn veikur, einu sinni enn !!  40°C hiti takk fyrir kærlega !
Ætlar þessu ekkert að linna ?!?! Frown


Ekki lengur í tónleikaferð

Vinkona mín skrifaði á "fésið" mitt (lesist Facebook) í gær, að það væri alveg sama hvenær hún kíkti inná bloggið mitt, ég væri alltaf í einhverri tónleikaferð !  Ég veit uppá mig skömmina með bloggleysið, og ætla að reyna að bæta úr því hér með, með svona stórum stiklum yfir atburði sl. mánaðar !

Látum okkur sjá......um mánaðarmótin veiktist Matthías (á laugardegi).....hann var með magakvalir miklar og hita og svoleiðis ógeðslegt.  Á miðvikudeginum var hringt af leikskólanum....Viktor Óli líka kominn með hita !  Ég get alveg sagt ykkur að ég var orðinn rétt u.þ.b Klepptæk þegar þessari veikindatörn lauk !  Pabbi þeirra kom hingað norður á fimmtudagskvöldinu, og var með þá helgina....þá voru þeir sem betur fer orðnir hressir, amk nógu hressir til að fara með honum á Akureyri yfir helgina.  Þorsteinn að vísu veiktist þar, og kom svo í ljós eftir helgina að hann var kominn með bronkitis, þannig að stúfurinn sá fór á pensilínkúr og astmapúst.  Pensilínið er að klárast og hann er mikið skárri, sem betur fer !  Agalegt að heyra hóstann í krakkanum !

Á föstudeginum þá helgina, beint eftir vinnu, fórum við Árný suður !  Vorum með mjög fína verkalýðsíbúð í Naustabryggjunni.  Gerðum ekki rass í bala á föstudagskvöldinu, en á laugardagskvöldinu var örlítið tekið á því.  Tilefnið var 35 ára afmæli stórfrænku minnar hennar Önnu.  Eftir slatta af "window shopping" á laugardeginum, höfðum við okkur til á mettíma......opnuðum öl og annan, og skelltum okkur heim til þeirra í þessa líka fínu afmælisveislu, takk kærlega fyrir mig elskurnar Grin

Síðan skelltum við frænkur okkur á Greifaball á Players og ó mæ god hvað það var gaman !  Þetta var fortíðarflipp af bestu gerð hehehe LoL  Dönsuðum frá okkur allt vit og hálfar lappirnar líka.....þetta var alveg ferlega gaman Grin  Fengum svo eðallimma til að sækja okkur og skutla okkur heim í íbúð Wink

Það voru mikið þreyttar konur sem komu heim á sunnudeginum Woundering

Síðan hefur það bara verið vinna og meiri vinna.
Er aðeins dottin í saumadótið mitt aftur, tek þetta svona í skorpum Wink

Það hefur ss ekkert agalega markvert gerst hérna sl mánuð.......þetta er sama rútínan dag eftir dag LoL

Ég hef verið að ýta því aftur fyrir mig að strákarnir verði ekki hérna um jólin.......ég hef aldrei verið barnlaus um jólin og mig kvíður svoooo fyrir því Frown  Ég veit að þeir eiga eftir að hafa það ferlega gott hjá pabba sínum og afa og ömmu.........en hef samt verið að ýta því útí horn Undecided

Ætla að láta þessu lokið í bili.......fyrir þessar hræður sem eru ekki búin að gefa upp alla von á lífsmarki frá mér, þá veit ég amk um Oddný vinkonu og pabba, þau kvörtuðu bæði undan pennaleti í mér hehehe LoL

Þangað til næst.............Kissing


Tónleikaferð

Ég, Árný og guttarnir mínir skutluðumst suður í gær.  Fórum með strákana í pass til Oddnýjar og Jökuls í Keflavíkinni og fórum svo í Laugardalshöllina á Minningartónleika um Villa Vill.
Þeir voru ÆÐISLEGIR !!!!!  Alveg meiriháttar !!!!  Það er erfitt að lýsa þeim almennilega.......þetta var bara alveg frábært !!  Tónlistarfólkið sem tók þátt í þessu stóð sig meiriháttar vel, en það sem stóð uppúr fyrir mér, var að sjá Jóhann, son Villa, koma á sviðið og syngja með Jónsa" Lítill drengur".  Það var frábært !! 
Líka þegar Laddi kom á svið og tók "Einshljóðfærissinfoníuhljómsveit" sem er hér að neðan.....það var meiriháttar !!

Eftir tónleikana fórum við aftur í Keflavíkina, vorum að gæla við að gista bara og skella okkur heim í dag, en spáin var ekkert uppá marga fiska, nenntum ekki að keyra heim í roki og rigningu, þannig að við drifum okkur af stað í gærkvöldi.
Þúsund þakkir fyrir passið Oddný (og Jökull líka hehe).
Komum við í áfyllingu á Ártúnshöfðanum........bæði á bílinn og okkur, og brunuðum svo heim.  Strákarnir sváfu nánast alla leiðina.......Viktor Óli svaf heldur illa þó, hann var alltaf að vakna þetta grey, eflaust orðinn útkeyrður eftir svona langa setu.  Við vorum það líka........þegar maður situr á botninum allan daginn, þá tekur það svolítið á Wink

Vorum komnar heim um 12:30 í nótt.....og strákarnir voru ekki lengi að hverfa inní herbergin sín og halda áfram að sofa LoL

2 gullkorn urðu til frá sonum mínum í gær.....

Þegar við komum í bæinn, stoppuðum við á N1 við Gagnveginn.  Stóðum þarna fyrir utan bílinn og vorum að reykja, og synir mínir eru bara þannig að ef að bíllinn stoppar, þá eru þeir búnir að rífa af sér beltin um leið og eru á ferðinni útum allan bíl.  Matthías stóð inní bíl.....og kemur svo út og segir:
"Mamma, þú trúir þessu ekki !!  2ja ára krakki girti mig niður!!!"  (nákvæmlega hans orð)

Þá hafði Viktor Óli gripið tækifærið fyrst Matthías var að glenna sig eitthvað, og kippt niður um hann buxunum !! LoL

Oddný sagði okkur líka, að Jökull hafi komist að þvi að Þorsteinn geti blaðrað útí eitt......sérstaklega við matarborðið.
Jökull hafi sagt við hann að hann ætti að renna fyrir munninn og henda lyklinum.....þið kannist við handahreyfingarnar sem fylgja þessu.......þá svaraði Þorsteinn:
"Hvernig á ég þá að borða??!!"

That's all folks Grin

 

 


Kreppa.........

.........og slaka !! LoL

Það verður sko ekkert helv.....krepputal í gangi á þessu bloggi, er alveg komin með uppí kok af aulabröndurum og krepputali undanfarna daga Sick

Strákarnir mínir fóru til pabba síns á fimmtudaginn og í tilefni af einveru minni í nokkra daga ákváðum við Árný að  bregða undir okkur betri löppunum og skella okkur suður í borg óttans.  Vorum í fínustu verkalýðsíbúð í Sólheimunum og höfðum það fínt. Eyddum helginni með viðhengjunum okkar, drukkum, djömmuðum, skemmtum okkur (og öðrum) alveg ferlega vel, sváfum frameftir, spiluðum og höfðum það bara æðislegt.  Gerðum það sem við vildum, þegar við vildum Smile

Fórum svo heim á mánudeginum......ég þurfti til læknis þá í hádeginu þannig að við komumst ekki fyrr, enda var það allt í lagi, græddum smá auka tíma LoL

Strákarnir mínir áttu svo að koma heim í gærkvöldi, en dallurinn sem leysir Herjólf af, bilaði þannig að þeir komu ekki fyrr en núna áðan.  Yndislegt að fá 3 púka hlaupandi á móti sér þegar maður er búinn að vinna, eftir svona fjarveru InLove

En.....ætla að láta þessu lokið í bili, það fer lítið fyrir blómailminum úr bleyju sonar míns núna Sideways

Kv. af Húnabrautinni LoL

Ps. jú á meðan ég man, mér tókst í síðustu viku, af því ég hef EKKERT annað við peningana mína að gera........að klessa bílinn minn á fimmtudaginn, og að brjóta risa fyllingu úr jaxli á leiðinni suður á föstudaginn.

EN.....það reddast.......er það ekki bara ?!?! LoL


Jæja já.......

Kannski kominn tími á eitthvað pár héðan af Húnabrautinni.....

Miðju maurinn Matthías er búinn að vera veikur síðan á miðvikudagskvöld.  Með einhverja fjandans hitapest og ljótann hósta Frown  Það hefur svosem ekki mikið sést á honum.......hann er búinn að vera eins og gormur útum allt Tounge  Hann er vonandi að hressast, amk tilkynnti hann mér í morgun að honum liði pínu vel Smile  Hann er spenntur fyrir skólanum, fékk heimaverkefni í vikunni í fyrsta sinn og sinnti því af mestu áfergju.....sjáum hvað það gengur lengi Grin

Viktor Óli er kominn á nýja deild í leikskólanum og blómstrar þar.  Hann var orðinn pínu vælinn á morgnana, en það er allt horfið.  Hann má varla vera að því að fara úr útifötunum á morgnana og að kveðja mömmu sína er bara aukaatriði LoL  Orðaforðanum fleytir fram, og hann syngur og trallar lög sem hann lærir á leikskólanum.......ég þarf bara að læra þau líka því ekki skil ég það sem hann syngur LoL

Þorsteinn minn fer vel af stað í skólanum, hann þarf sem fyrr að taka sig á í lestrinum, stafsetningu og skrift.......og þegar það er komið þá mun námið leika fyrir honum Smile
Hann fékk bók frá Steina pabba sínum í afmælisgjöf, og vill nú ólmur skipta um lestrarbók í skólanum, hann LANGAR að lesa bókina sem fyrst !!  Hann langar ALDREI að lesa bækur, honum leiðist það meira en allt held ég Wink
Hann ætlar að halda smá uppá afmælið í kvöld, fær nokkra vini sína í pylsupartý, snakk og dvd.....og hinn helmingurinn af honum ætlar að gista (lesist Óskar).

Af mér er allt ágætis að frétta......lífið gengur sinn vanagang svosem.  Breytingar í vinnunni, Anna Kristínin mín er að hætta sem stöðvarstjóri og fer á vit annarra ævintýra á vinnumarkaðinum.
Mér finnst það frábært hjá henni, en ég á eftir að sakna hennar helling samt  Undecided

Þvottahúsið og fleiri gleymdir staðir innan heimilisins hafa fengið að kenna á því að ég hef verið heima með veikann dverg sl. daga.....og svei mér þá ef ég er ekki farin að uppgötva að það er SVONA gólf í þvottahúsinu LoL

Ég og Árnýin mín ætlum að bregða undir okkur betri fætinum næstu helgi.  Þá fara strákarnir til pabba síns og við Árný ætlum að skella okkur í borg spillingana.  Fengum verkalýðsíbúð og ætlum að hitta gamla og góða vini og hafa það gott, hlakka hrikalega mikið til Grin

Heyri í ykkur síðar ljúfurnar, þar til næst........... Kissing


Afmæli á Húnabrautinni

Þetta kjánaprik á afmæli í dag, ótrúlegt alveg að það séu 11 ár síðan hann fæddist !!

Til hamingju með afmælið þitt elsku Þorsteinn minn InLove

 

DSC00658

 


Loksins !!!

Blóðbankinn
 
 
Blóðbíllinn stoppaði hjá okkur í dag og ég er loksins orðinn blóðgjafi !!
450 ml komnir í bankann Grin
Þetta er kannski ekki merkilegt fyrir ykkur, en fyrir mig er þetta risastórt !!
 
Blóðgjöf er lífgjöf

Tannálfurinn og lítil systir

Það hlaut að gerast á endanum, lausa tönnin hans Matthíasar fór í gærkvöldi.  Og í morgun, þegar hann sýndi mér peninginn sem álfurinn skildi eftir, sýndi hann mér aðra lausa tönn LoL

babygirlcongrats

 

 

 

Pabbi hringdi í nótt og sagði mér að ég hefði eignast systur fyrr um nóttina, innilegar hamingjuóskir með hana pabbi minn og Lizel InLove


Matthías og tannálfurinn

ist2 6908519 vector winking happy smiling tooth

 

 

 

Það hlaut að koma að því !!  Matthías er með fyrstu lausu tönnina !! Grin
Það þarf að fara að þessu öllu saman rétt, hann gat ekki fiktað í lausu tönninni í bílnum af því að þá gæti hún týnst....hann sagðist þurfa að hafa tissue hjá sér þegar hann missti hana en gat ekki útskýrt til hvers það ætti að vera LoL

Hins vegar var hann fljótur að finna út aðferð til að hjálpa til við að losa hana meira:

"Mamma..........ef ég fæ súkkulaðikex, þá kannski losnar hún meira"
LoL

 

rofl 

 


Næsta síða »

Ég heiti...

Gerða Kristjáns
Gerða Kristjáns
"Gættu þess að segja stundum eitthvað fallegt við vini þína, eitthvað sem kemur beint frá hjartanu."

Nafnlausum athugasemdum verður eytt !

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 1
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 1
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband