Leita í fréttum mbl.is

Lítil hjartnæm saga

Þessi saga gerðist fyrir mörgum árum.

Gylltur pakkiMaður nokkur refsaði 3ja ára gamalli dóttur sinni fyrir það að eyða heilli rúllu af gylltum pappír.  Ekki var mikið til af peningum og reiddist hann þegar barnið reyndi að skreyta lítið box til að setja undir jólatréð.  Engu að síður færði litla stúlkan föður sínum boxið á jóladagsmorgun og sagði: "Þetta er handa þér pabbi".  Við þetta skammaðist faðir stúlkunnar sín fyrir viðbrögð sín daginn áður.  En reiði hans gaus upp aftur þegar hann áttaði sig á því að boxið var tómt.  Hann kallaði til dóttur sinnar: "Veistu ekki að þegar þú gefur einhverjum gjöf, þá á að vera eitthvað í henni?"
Litla stúlkan leit upp til pabba síns með tárin í augunum og sagði: "Ó pabbi, boxið er ekki tómt.  Ég blés fullt af kossum í það.  Bara fyrir þig Dapurpabbi"  Faðirinn varð miður sín.  Hann tók utan um litlu stúlkuna sína og bað hana að fyrirgefa sér.

Það er sagt að mörgum árum seinna, þegar faðir stúlkunnar lést, og hún fór í gegnum eigur hans, hafi hún fundið gyllta boxið frá því á jólunum forðum, við rúmstokkinn hans.  Þar hafði hann haft það alla tíð, því þegar honum leið ekki vel gat hann tekið upp ímyndaðann koss og minnst allrar ástarinnar sem barnið hans hafði gefið honum og sett í boxið.
Í vissum skilningi höfum við allar lifandi mannverur, tekið á móti gylltum boxum frá börnum okkar, fjölskyldum og vinum, fullum af skilyrðislausri ást og kossum.  Það getur enginn gefið dýrmætari gjöf.
Í dag skaltu gefa þér augnablik og njóta stórrar handfylli af minningum.  Og mundu að þær verma hjarta þitt og bráðna þar........en ekki í höndum þínum.

Þessi saga beið mín undir bréfalúgunni í morgun.........ásamt fleiru, og vil ég þakka þér kærlega fyrir, hver sem þú ert (Það stóð reyndar Stekkjarstaur undir í kortinu en ég held að það sé plat)
Takk !!!
  Blow a kiss

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árný Sesselja

Þessi saga er verulega falleg.... snertir mann í hjartastað.  Ég fékk tár í augun.

Árný Sesselja, 12.12.2007 kl. 23:07

2 Smámynd: Anna Gísladóttir

Þetta er svoooo falleg saga .......

Mikið svakalega er Stekkjastaur góður við þig

Anna Gísladóttir, 12.12.2007 kl. 23:28

3 Smámynd: Rannveig Lena Gísladóttir

  skæli dagsins lokið    Falleg saga.... og falleg hugsun á bakvið sendinguna sem þú fékkst. 

Rannveig Lena Gísladóttir, 13.12.2007 kl. 12:30

4 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

Mikið er þessi saga falleg gerða mín.

Kristín Katla Árnadóttir, 13.12.2007 kl. 21:12

5 identicon

Datt hérna óvart inn...og get ekki annað en skilið eftir nokkur orð  eftir að ég hef þurrkað öll tárin sem hrundu niður á meðan ég las þessa sögu.Þetta er gott dæmi um það að bestu gjafirnar eru oft ekki sýnilegar.

Vona að þú eigir gleðileg jól og afsakið ónæðið

litla ljót (IP-tala skráð) 14.12.2007 kl. 19:07

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég heiti...

Gerða Kristjáns
Gerða Kristjáns
"Gættu þess að segja stundum eitthvað fallegt við vini þína, eitthvað sem kemur beint frá hjartanu."

Nafnlausum athugasemdum verður eytt !

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 15
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 40
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband