Færsluflokkur: Almennt raus
27.8.2007 | 00:37
Norðurljós.....
Við kíktum í sveitina í dag, stoppuðum stutt að vísu þar sem Viktor Óli var orðinn svo hrikalega þreyttur.......enda vorum við ekki komin niður á malbikið aftur þegar hann var sofnaður. Árný kíkti svo hérna í kvöld og baðaði minnsta maurinn á meðan ég nærði mig, og bjargaði svo Matthíasi uppúr hans baði því ég var með Viktor trítilóðan í fanginu, orðinn úrvinda af þreytu aftur en náði ekki að róa sig niður nóg til að sofna. Hann er búinn að vera ferlega lítill í sér alla helgina, límdur á rassinn á mér eins og frímerki. Einhvern veginn grunar mig að í fyrramálið verði sama seremónían á leikskólanum eins og á fimmtudag og föstudag.........hangið á hálsinum á mömmu og neitað að sleppa. En hann er fljótur að jafna sig eftir að ég fer að vinna, sem betur fer. Það er erfitt að labba í burtu og heyra hann gráta sárt á eftir manni
Nú er maður með tissue bréf á lofti alls staðar, drengurinn er kominn með hor í nös og slatta af því, það er greinilegt að veturinn er að koma.
Kveð ykkur í kútinn í bili..........þar til næst
26.8.2007 | 00:05
Kjötbollur anyone ?
Hafði þó vit á því að gera bara eina uppskr. í einu, svona miðað við hamfarirnar þegar ég gerði þrefalda muffins uppskrift hérna fyrir nokkru og endaði á að handhræra allt draslið ! LOL
Viktor Óli er búinn að vera eitthvað sloj í dag, má varla af mér sjá þá fer allt í vitleysu.......enda tók bollutrallið mestan partinn úr deginum, með því að vera að fara og sinna honum inná milli. En það var allt í lagi, bollurnar steiktust á endanum og eru komnar í maga og frysti
Það varð jafntefli í leiknum hjá Hvöt og Hugin á Seyðisfirði, 1-1. Ég vil bara árétta það Árný og Vala, að ég var EKKERT abbó yfir að þið skylduð vera þarna en ekki ég......ekki hið minnsta ! En það er eins fallegt að ég fái myndir af flottum rössum í stuttbuxum á morgun hahaha
Kveð ykkur í kútinn í bili........þar til næst
23.8.2007 | 23:23
Mig vantar pössun !!
Og þar sem það er útileikur um helgina, þá verður heimaleikurinn kl. 7 á þriðjudagskvöldið og það er nær ómögulegt fyrir mig að fara með ormana þá, amk þann yngsta
***Update........eftir að hafa skoðað Hvatarsíðuna komst ég að því að leikurinn er kl. 17:30 á þriðjudeginum þannig að ég kemst á hann !!! Vííííííííí
Ég hafði aldrei farið á leik fyrr en við fórum á Krókinn í sumar og þetta er bara alveg ágætis skemmtun.........öflugt stuðningslið heimaliðisins er toppurinn sko
Þannig að ég segi bara eins og Kári Kára........."'étt'ann, étt'ann, étt'ann !!!
Áfram HVÖT !!!!!
Almennt raus | Breytt s.d. kl. 23:27 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
22.8.2007 | 22:27
Miðvikudagur til mæðu ??
Viktor Óli fór loksins í 12 mánaða skoðun í morgun, var vigtaður og lengdarmældur og er orðinn 11,9 kg og 77 cm ! Fékk sprautu líka og það gekk bara ferlega vel, ekkert vælt og ekki neitt
Hann labbar meðfram öllu eins og greifi og sleppir sér helling á milli fólks....er víst kominn á þvílíka fartið á leikskólanum
Annars er ferlega lítið að frétta þannig séð, kíktum á Krókinn á föstudaginn. Oddný systir og hennar famelía voru að flytja þangað frá Höfn og auðvitað kíktum við á slotið, til hamingju með íbúðina elskurnar
Signý Björg var sérleg hjálparhella mín á laugardaginn, hún var hérna á meðan Árný fór í brúðkaup. Hún var alveg meiriháttar með Viktor Óla, lék helling við hann og hafði endalausa þolinmæði, þetta stelpuskott er algjört yndi, takk fyrir okkur Signý, vonumst til að sjá þig fljótt aftur
Kveð ykkur í kútinn í bili........já og meðan ég man, þessi vog þarna úr síðustu færslu hefur ekki enn látið sjá sig hahaha
19.8.2007 | 12:48
Stjörnurnar segja....
Þá er bara spurning um hvar ég finn þessa vog !!
Any ideas ??
16.8.2007 | 00:32
Gaurarnir mínir....
Það voru sko fleiri en ég sem biðu eftir að fá þá heim, Vala rak inn nefið bara rétt til að tékka, fékk knús og kossa frá öllum gaurunum og labb frá Viktori Óla
Síðan komu Árný, Svanhildur og Signý og þar var sama sagan, bros og knús og kossar og Viktor Óli brilleraði á labbinu hérna fram og til baka á milli okkar, algjör snúlli
Svo verða þeir 2 yngri að fara á leikskólann á morgun, ég fer að vinna aftur á mánudaginn og þeir verða að fá að aðlagast aftur áður en ég fer að vinna.
Læt þetta duga í bili, ætla að fara í langþráðan rúnt á milli herbergja, laga sængur, slökkva ljós og taka bækur burt af andlitum.......og finna þessa yndislegu barnalykt í herberginu mínu aftur
12.8.2007 | 21:53
Kaffiprófið, hvað ert þú ??
Bankakaffi!
..sívinsælt og bráðnauðsynlegt.
Hvernig kaffi ert þú eiginlega?
Bankakaffi!
Þú ert harðduglegur og vinnusamur einstaklingur sem mætir fyrstur allra á kontórinn og ferð síðastur heim. Vinnufélagar þínir líta upp til þín og hugsa með sér í hljóði hvaðan þú fáir alla þessa orku.
Þeir vita ekki sem er. Þú færð nefnilega allan dugnaðinn úr bankakaffinu góða.
Bankakaffi er samheiti fyrir gamla góða uppáhellinginn en dregur nafn sitt af ókeypis kaffi í bönkum. VARÚÐ: Ef bankakaffi fær að standa á brúsanum of lengi verður það súrt.
Almennt raus | Breytt s.d. kl. 21:57 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
9.8.2007 | 19:49
Eyðsluklóin og lögskilnaður
Er búin að versla eitthvað af fötum á gaurana mína, fann buxur á Þorstein sem hanga upp um hann þannig að 3 pör af þeim takk, nokkrar peysur, Matthías fékk líka nokkrar buxur og peysu sem hann valdi sjálfur í dag, jú og skó líka, og svo fann ég fullt af fötum á Viktor Óla á Barnalandi........buxur og peysur í bunka, samfellur, sokkabuxur, náttföt, úlpur og þykkar peysur, húfur og vettlinga......og þrenna skó, og allt fyrir 5000 kall !! Ekki slæm kaup það Ég fór ein að flækjast í gær en var með Matthías með mér í dag og við áttum ferlega góðan dag. Hann, ólíkt flestu karlkyns, hefur gaman af því að flækjast í búðir......ef við erum bara 2 ein. Þannig að við gátum rápað aðeins og haft gaman. Nærðum okkur á Subway, ferlega gott.
Kíktum svo í kaffi til Önnu frænku og lukum verslunarleiðangrinum í Bónus í Keflavík.
Minn fyrrverandi eiginmaður hafði það loksins af í dag að fara til sýslumanns og skrifa undir skilnaðarpappírana þannig að frá og með deginum í dag erum við Gauðlaugur (já það stendur Gauðlaugur í pappírunum hahaha) skilin að lögum. Þannig að það er kannski spurning hvort við séum í raun skilin......þar sem ég giftist Guðlaugi en skildi við Gauðlaug........spurning
Hafið það gott elskurnar
6.8.2007 | 22:13
Sumarfrí
Skellti mér svo í morgun hérna inn í Keflavík og lét flétta á mér hárið í svona afrófléttur......með hárlengingu. Þannig að núna er skvísan með sítt hár, pínulitlar fléttur og heljarinnar hausverk hahaha Enda ekkert skrítið, þetta eru smávegis átök fyrir hársvörðinn.
Síðan á að versla eitthvað áður en maður heldur heim á leið aftur, þarf fyrst og fremst að kaupa mér stöng fyrir sturtuhengið mitt !! Hundleiðinlegt að komast ekki í sturtu standandi öðruvísi en að subba gólfið allt út !
Heyri í ykkur síðar ljúfurnar, adjö í bili
31.7.2007 | 01:28
Nei fjandinn.....
En það var alveg þess virði samt, veðrið var svooo æðislegt, og ég VARÐ að klára þessa frábæru bók, þið sem hafið ekki lesið hana, endilega drífa í því, hún er frábær
Eftir vinnu í dag kallaði sófinn aðeins á mig, bara pínu sko......og í staðinn er ég andvaka uppí rúmi og klukkan að verða hálf 2 ! Það er svosem í lagi, Josh Groban er hérna með mér að syngja fyrir mig, ekki slæmt að sofna útfrá svona karlmanni ha Tja já eða röddinni sko hahaha
Merkilegur skratti samt......maður er umvafin fólki nánast allan daginn, en ég held að ég hafi aldrei verið eins einmanna á ævinni, eða eins eirðarlaus Einhver sem kann lausn á því ? Það er ekki gott að vera einmanna.................er orðin soldið þreytt á þessu
Hafið það gott darlíngs, heyri í ykkur síðar.........
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.1.): 1
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 130570
Annað
- Innlit í dag: 1
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 1
- IP-tölur í dag: 1
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar