Færsluflokkur: Bloggar
2.3.2007 | 10:11
Yard of Snowmen-vinnslumynd
Bloggar | Breytt s.d. kl. 10:19 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
1.3.2007 | 14:38
Astmi og bjór........
Bloggar | Breytt s.d. kl. 14:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
28.2.2007 | 22:47
Dagur 2....
Ágætis vinnudagur, staffafundur í dag með alveg svakalegri súkkulaðigúmmelaðiköku og helling af málefnum sem var tekið á.
Viktor Óli átti ekkert alltof góðann dag í dag, var eitthvað lítill í sér eftir hádegið á stubbadeildinni, hóstaði alveg svakalega og það hefur ekkert skánað með deginum......verð að fara með hann til læknis á morgun, ég hef grun um að hann sé kominn með asma, hann hljómar þannig
Fékk samt Gísla stóra frænda til að koma í kvöld og passa í örlitla stund, á meðan ég, Árný og M.Lena fórum á fatakynningu hjá Frú Stöðvarstýru. Mátaði slatta og pantaði mér svo eitt stykki bol, ógó sætann
Ætla að láta þessu lokið í bili, er sybbin og með hausverk.
Hafið það eins gott og þið mögulega getið elskurnar
Bloggar | Breytt s.d. kl. 22:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
27.2.2007 | 20:09
Jiii dúddamía !!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:10 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
26.2.2007 | 23:39
Ég er frábær :o)))
Fór í vinnuna í morgun og mikið ofsalega var gott að komast í hana aftur......það var bara eins og maður hafi verið endalaust í burtu. Enda ekki búin að fara útúr húsi (fyrir utan einstaka skúrferðir) síðan á þriðjudaginn sl.
Ég er handviss um að vinnufélögum mínum hefur hundleiðst á meðan ég lá heima í flensu......það er að segja þeim sem voru ekki líka heima í flensu
Ég amk tek helminginn ef ekki meira af kreditinu fyrir það að stöðvarstýran var komin í Pollyönnufílingin fyrir hádegi Hehehe ég veit þú lest þetta stundum Frú Stöðvarstýra.......og trúðu mér, þetta gæti verið verra
Fór svo og sótti gullin mín á leikskólann. Yngsti guttinn er svooooo útkeyrður eftir daginn, þrátt fyrir að taka sér 2 x langa lúra.....að hann er "rotaður" í bólinu sínu og hefur verið það síðan um 6 leytið í dag ! Hann hefur gert þetta síðan hann byrjaði á stubbadeildinni, sofnað svona úber snemma..........þannig að kvöldin mín hafa verið mikið róleg
Netrúntaðist aðeins og settist svo í leisíbojinn minn og kláraði að sauma snjókarl númer 8 !! Vúhú !! Hann er loksins búinn !! Þá eru ekki eftir nema 4 í þessari snjókallalengju minni Kannski maður klári þetta fyrir áramótin...ha ?
Hafið það eins gott og mögulegt er elskurnar........ég ætla að fara og svífa inní draumalandið og vona að mig dreymi eitthvað fallegt
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:42 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (9)
25.2.2007 | 20:07
Vinur.....hvað er það ?
Á hvaða tímpunkti fer manneskja úr því að verða kunningi yfir í að verða vinur ?
Og hvað er vinur ?
Segir það eitthvað um mig að ég á fáa vini en fullt af kunningjum ?
Viðurkenni það hiklaust, ég á ekki marga vini, en þeir sem eru vinir mínir eru góðir vinir og mér finnst að þá beri að velja af kostgæfni.
Ég get treyst mínum vinum fyrir öllu án þess að fá í bakið síðar meir eitthvað af því sem þeim var treyst fyrir.
Vinur minn á að þora að segja mér hreint út hvað honum/henni finnst, án þess að "sykra" það eitthvað, og ég á að geta tekið því eins og þroskuð manneskja.
Ég vil geta leitað til vinar míns með hvað sem er, á hvaða tíma sem er (nánast).
Og vinur minn veit að ég er alltaf til staðar fyrir hann/hana.
Vinur minn veit líka að þó svo að við séum ekki í daglegu sambandi þá er ég er alltaf vinur.
Ég fann mikið fyrir því í vetur hverja ég á að vinum, í kringum skilnaðinn. Fékk þá í heimsókn reglulega og það var passað uppá mann án þess að það væri neinn átroðningur skiljiði.
Sjónvarpskvöld með snakk og kók og fullt af nammi.......innlit í skúrinn (hreina loftið sko), komið í mat........bara verið til staðar þegar ég þurfti á því að halda.
Og þeir sem voru ekki á svæðinu létu í sér heyra í síma/skype/msn/email.
Hvað sem var..........ég vissi af þeim og það var nóg.
Og einn vinur sérstaklega kom mér til að brosa aftur, takk luv
Ég er verulega rík manneskja, ég á 4 heilbrigð börn, yndislega fjölskyldu og góða, sanna vini
Hvað er vinur fyrir ykkur ??
Bloggar | Breytt s.d. kl. 20:13 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
25.2.2007 | 19:42
Helgaruppgjör og strákarnir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.2.2007 | 22:25
Gengið of langt ?
Þegar hún sá Guð, spurði hún: " Er minn tími kominn?"
Guð svaraði: "Nei, þú átt ennþá eftir 43 ár, 2 mánuði og 8 daga ólifaða"
Á vöknun eftir aðgerðina ákvað konan að vera lengur á sjúkrahúsinu og láta gera á sér andlitslyftingu, fitusog, brjóstastækkun og svuntuaðgerð. Hún meira að segja lét kalla eftir fólki til að lita á sér hárið og hvíta tennurnar.
Fyrst hún átti svona langt eftir ólifað var alveg eins gott að gera sem mest úr því.
Eftir síðustu aðgerðina var hún útskrifuð og mátti fara heim. Þegar hún var að fara yfir götuna á leið heim, verður hún fyrir sjúkrabíl og deyr.
Þegar hún hitti Guð aftur varð hún fojj og hnussaði: "Ég hélt þú hefðir sagt að ég ætti rúmlega 43 ár eftir ólifuð.....af hverju vísaðiru mér ekki veginn frá sjúkrabílnum?!"
Guð svaraði: "Já en ég þekkti þig ekki......... "
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.2.2007 | 10:41
Ásta Lovísa
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:29 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.12.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar