22.4.2008 | 21:36
Útskriftarferð


Hérna eru þeir bræðurnir á leikskólanum.......veit ekki hverjum datt í hug að setja þessa ljótu húfu á yngri afleggjarann

15.4.2008 | 20:45
Árshátíð og fleira.....

Sl. föstudag fór ég í jarðarför pabba vinkonu minnar, erfið jarðarför að mörgu leyti en svo falleg líka. Synir Einars heitins og sonarsonur spiluðu nánast alla tónlistina í athöfninni, flygill, flugelhorn, trompet, gítar og bassi eru þau hljóðfæri sem komu við sögu, að ónefndu orgelinu, karlakórnum og Þórhalli. Tónlistin var himnesk, alveg meiriháttar. Þeir sem ekki vissu, þá lærði ég á trompet í 8 ár þegar ég var yngri og er algjör "sökker" fyrir tónlist spilaðri úr því hljóðfæri, og þeir spiluðu svooooo vel og fallega að það var frábært. Ég stóð sjálfa mig að því oftar en einu sinni að fara næstum að klappa að flutningi loknum, en það var víst ekki viðeigandi. Huggaði mig þó við það eftir helgina þegar ég las á fleiri bloggum að ég var ekki ein um þetta, að bresta næstum í klapp

Elsku Lena mín, minning pabba þíns lifir í ótal hjörtum áfram

Eftir jarðarförina var smá spæningur hérna heima. Við strákarnir að fara suður og sauðurinn ég ekki búin að pakka. Var komin heim um 15:30.......spændi úr sparifötunum, pakkaði niður fyrir mig og gaurana (með hjálp frá Þorsteini) gekk frá hérna heima, vaskaði upp, kom draslinu út í bíl og var komin upp á leikskóla til að sækja yngri gaurana kl. 16 ! Og merkilegt nokk að þá gleymdist ekkert merkilegt hahaha

Signý vinnufélagi (Hæ Signý, hvernig væri að kvitta svona í tilefni dagsins ha ???


Komst fyrir rest inn í Keflavík þar sem Oddný tók vel á móti mér



Hótel tjékk-inn eftir það.....Hilton Nordica var það heillin


Hitti pabba þegar ég var komin með meðvitund daginn eftir. Fórum á smá flakk.......fórum á veitingastaðinn Hornið í mat og fengum æðislegann mat. Fórum svo á röltið og skröltið í Kolaportinu, hef ekki gert það lengi og enn lengra síðan hann fór þarna

Gerðum svo góð innkaup í Bónus áður en mér var skilað í bílinn minn sem stóð ennþá við hótelið.
Takk fyrir daginn pabbi minn, þetta var frábært

Þaðan fór ég í fermingarveislu í Garðinum, það var verið að ferma frænku hans Lauga og þar hitti ég gaurana mína. Stoppaði aðeins og síðar héldum við í bæinn, sóttum Signýju (ekki gleyma að segja hæ Signý


Bíllinn minn fór í smurningu og á sumartútturnar í dag........það er eins fallegt að það snjói ekkert meir á næstunni !!!
Vörutalning í vinnunni í dag líka.......gekk fínt, en þetta var samt skrítinn dagur

Vil minna þá sem eru hérna á Blönduósi og lesa þetta raus, að Blóðbankinn verður með bílinn sinn fyrir utan hjá okkur á N1 á morgun, frá kl. 14-17. Ég hvet alla sem geta að koma og gefa blóð, því blóðgjöf er lífgjöf !!
Kveð ykkur í kútinn í bili.........þar til næst

9.4.2008 | 07:22
Matthías Freyr 6 ára
5.4.2008 | 19:07
Uno mas ?
Það er búið að vera voðalega dimmt yfir mér undanfarið, hef hugsað mikið til þess fólks í kringum mig sem á um sárt að binda þessa dagana, vegna andláts ástvina sinna. Hugur minn er hjá ykkur öllum og ég bið alla góða vætti um að styrkja ykkur í þeirri sorg sem þið kljáist við

Af sonum mínum er allt ljómandi að frétta. Þorsteinn fór í skíðaferðalag með skólanum á miðvikudaginn sl. og skemmti sér stórvel. Mig drullukveið fyrir því hann hefur ekkert mikið verið að þvælast á skíðum.......og ég fékk risahnút í magann þegar um miðjann dag hann hringir í mig í vinnuna og sagðist hafa meitt sig. En það var sem betur fer ekkert alvarlegt, smá bylta, skíði í hausinn og hausverkur




Matthíasinn minn er svoooooo duglegur. Hann hefur átt voðalega erfitt með að sofa í sínu rúmi alla nóttina, hefur ýmist komið uppí til mín eða farið fram í sófa. En núna undanfarna viku hefur hann sofið alla nóttina í sínu rúmi !! Er ekkert lítið stolt af mínum manni


"Ef ég vakna mamma, þá bara leggst ég aftur niður, og hugsa fallegar hugsanir og þá sofna ég bara aftur"
Hann átti nú ágætis gullkorn um daginn. Hann hafði verið að tala við pabba sinn í símann og þegar hann var búinn þá spurði ég hvar hann hafði sett símann......."nú ég setti það í hræðslutækið"

Viktor Ólinn minn er bara krúttköggull


Hann fékk glimrandi skoðun, er orðinn 12,870 gr og 83,5 cm ! Ég held að ég hafi fundið meira til en hann þegar hann fékk sprautuna, hann kipptist ekkert við og það heyrðist ekki eitt píp í honum, ferlega duglegur

Honum fer svo fram í tali þessa dagana, hellingur af orðum sem hann segir og það kemur mér alltaf jafn mikið á óvart hvað hann skilur mikið, það er alveg ótrúlegt.
Af mér er hins vegar mest lítið að frétta..........er búin að vera andlaus, hef mig ekki í að sauma einu sinni. En það hlýtur að koma með vorinu

Þetta er það helsta sem er í fréttum frá Húnabrautinni í dag.........hafið það eins gott og þið getið, það ætlum við að gera

31.3.2008 | 22:39
Nýjustu nöfnin sem mannanafnanefnd leyfir
24.3.2008 | 22:57
Fallin hetja :o(
Elsku Fjóla, Mummi, systkyn Hugins og fjölskylda, Guð gefi ykkur styrk til að takast á við þennan stóra missi.
Kv. Gerða Kristjáns og fjölskylda
Til lítils engils
Mamma, ekki gráta mig, ég veit þú saknar mín.
Mig langar að vera hjá þér og þerra tárin þín.
Ég fékk svo oft að sjá þig og blíðu brosin þín,
Guð vantaði lítinn engil og kallaði mig til sín.
Segðu pabba að ég elsk´ann því pabbi á líka bágt,
faðmaðu hann fyrir mig og hvíslaðu ofurlágt.
Segð´onum frá stjörnunni sem á himnum skærast skín,
kennd´onum að þekkja hana því hún er stjarnan mín.
Núna áttu lítinn engil sem vakir yfir þér,
ég passa líka pabba, segðu honum það frá mér.
Það eru hér svo margir sem þykir vænt um mig,
fjöldi fallegra engla sem gæta mín fyrir þig.
Tendraðu lítið kertaljós til að lýsa þér til mín,
láttu á leiðið mitt hvíta rós, það læknar sárin þín.
Þegar sorgarinnar skuggi dvín, þá muntu minnast mín
og tár þín verða gleðitár því ég verð ávallt þín.
20.3.2008 | 22:58
Er víst komin heim

En þetta var ferlega skemmtileg ferð, alveg meirháttar. Samt alltaf gott að koma heim.......

Heyri í ykkur síðar, er að sofna hérna fram á lyklaborðið

14.3.2008 | 23:37
Orblogg fra London
Jaeja.......dagur 3 naestum a enda og thetta er buid ad vera gjorsamlega GEGGJAD !!!
Buin ad versla FULLT af fotum, adallega a sjalfa mig svona einu sinni, borda godan mat, fara a Queen showid (for lika a thad 2006 en vaeri vel til i ad sja thad einu sinni enn ef ekki oftar) og sidast en ekki sist, vera i frabaerum felagsskap. Thetta er buid ad vera AEDI !!! (herna aetladi eg ad setja broskall en thad virdist ekki vera haegt ad gera thad frekar en ad skrifa islenska stafi hehehe :o))
A morgun er stefnan tekin a Portobello Road og Oxford Street i framhaldi af thvi..........fann verslun sem selur ulpur, jakka og thesshattar og aetla ad skoda hana nanar........
Hafid that gott elskurnar.........thangad til naest :o)
12.3.2008 | 06:10
Allt að gerast

Taxabílar eru væntanlegir kl. 6:50 til að hirða upp 9 kellur, spenntar og ákafar í að komast í smá húsmæðraorlof.......og mikið held ég að Jökull verði feginn að losna við okkur hahaha

Veriði stillt elskurnar........sjáumst skömmu síðar

10.3.2008 | 17:57
Að gera'ða með hinni.....
Menntaskólakennari hafði nýlokið við að útskýra mjög miklvægt rannsóknarverkefni fyrir bekknum.
Hann lagði sérstaklega áherslu á að enginn gæti útskrifast úr faginu nema kunna skil á verkefninu. Hann bætti svo við að hann myndi fara ítarlega í verkefnið degi síðar og einu afsakanirnar fyrir því að mæta of seint væri ef dauðsfall hefði orðið í fjölskyldunni eða illvígur sjúkdómur myndi leggja einhvern í rúmið.
Mesti gæinn í bekknum rétti upp höndina og spurði:
En hvað ef maður er gjörsamlega búinn eftir geggjað kynlíf, kennari ???
Bekkurinn sprakk úr hlátri og gæinn var montinn með að hafa valtað yfir kennarann.
Þegar nemendurnir höfðu jafnað sig eftir hláturinn, leit kennarinn á gæjann og sagði :
"ÉG BÝST VIÐ AÐ ÞÚ ÞURFIR ÞÁ BARA AÐ LÆRA AÐ SKRIFA MEÐ HINNI HENDINNI !
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (15.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 4
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar