Leita í fréttum mbl.is

Allt að gerast

Halló elskurnar Smile

Jæja, þá er þetta allt að smella saman.  Er alveg að komast uppúr kössunum og er að verða búin að koma mér fyrir þannig séð.........verð örugglega í einhvern tíma að endurraða til að finna hlutunum "sinn" stað LoL   Solla er búin að vera svooooo ómissandi hjálparhella, hún er búin að vera í vetrarfríi þessa vikuna og hefur komið og hjálpað mér og það er mér svo mikils virði, takk Solla, þú ert bestust Kissing   Hún tók meira að segja kærastann með sér í dag og þau hjálpuðu mér að setja upp ljós þar sem það þurfti, bora í veggi og festa hitt og þetta og negla slatta af nöglum og hengja upp myndir og svoleiðis trall.  Þannig að þetta er aaaaalveg að smella Grin

Strákarnir mínir koma heim á morgun, hlakka ekkert lítið til og ég veit að þeir eru að farast úr spennu yfir að sjá nýja heimilið.  Bara gaman að því Smile

Tek almennilegan bloggrúnt á ykkur vinir mínir þegar ég verð alveg búin að koma mér fyrir.

Þar til næst...........farið vel með ykkur Smile

Gleðilega páska

Góðan dag börnin góð og gleðilega páska Smile

Þá er maður búinn að tæma húsið og flutt í nýja húsnæðið á Húnabrautinni.  Íbúðin lítur út eins og eftir sprengjuárás en það hlýtur að lagast.  Er ekki búin að láta flytja símann og netið þannig að fyrst um sinn verð ég netlaus.......þið verðið bara að höndla það Wink
Vildi bara koma frá mér línu og óska ykkur gleðilegra páska.......ekki borða yfir ykkur af góðum mat...tja eða páskaeggjum Tounge

Hafið það sem allra best..........heyrumst í næsta stríði Smile

Ps. smá update......var að heyra í strákunum mínum sem eru hjá pabba sínum........Matthías tilkynnti mér að hann hafði sko fengið páskaegg númer 7 frá Nóa Seríós !!  Geri aðrir betur LoL

Er á lífi

...bara búin að vera löt.  Fór í bæinn á föstudaginn með strákana til pabba síns.  Fór svo í PARTÝ um kvöldið !  Já undarlegir hlutir gerast sko LoL   Það var bara alveg ágætis........
Fékk með mér gest í bakaleiðinni og við kíktum í kaffi lengst í langtíburtistan á Begga og Sæunni.  Það var alveg frábært, gott að borða með kaffinu og drengurinn þeirra BARA snilld LoL
Fórum í sveitina í gær og í mat þar í gærkvöldi, lambalæri með alles, ljómandi gott bara Smile
Vinna í dag og vonandi.....vonandi fæ ég lyklana að nýja heimilinu á morgun !  Fór og kíkti þangað í dag og þetta verður bara gott.  Get þá klárað það af áður en guttarnir koma heim.

Er löt og nenni ekki meir........heyri í ykkur síðar Smile

Takk

Takk fyrir hlýjar hugsanir kæru vinir og góðar óskir.......drengurinn var það hress að fara á leikskólann í morgun og ég í vinnuna Smile   Hann lék á alls oddi og var bara sprækur, takk kærlega fyrir okkur Kissing

Konan

Þegar Guð skapaði konuna vann hann seint á sjötta degi þegar engill kom að og sagði við hann:
„Því að eyða svona miklum tíma í þetta?“ 

Og Drottinn svaraði „ Hefurðu ekki séð upptalninguna á því sem ég þarf að gera til að skapa hana?“ 

“Hún þarf að vera vatnsheld en þó ekki úr plasti, hafa meira en 200 hreyfanlega hluta sem alla þarf að vera hægt að skipta um og hún þarf að geta framleitt hvaða mat sem er, hún þarf að geta faðmað mörg börn í einu og gefið faðmlag sem eitt og sér læknar allt frá skrámu til ástarsorgar. Þetta allt þarf hún að gera og það með aðeins tvær hendur“ 

Engillinn varð mjög hrifinn og sagði: 

“Bara tvær hendur...það er ómögulegt!“     „Og þetta er bara venjulegt eintak?!“  

“Þetta er allt of mikil vinna sem þú klárar ekki í dag, geymdu þetta þangað til á morgun og kláraðu hana þá“  

“Það geri ég ekki“ svaraði Drottinn. “Ég er svo nálægt því að fullgera þetta sköpunarverk sem mun eiga séstakann stað í hjarta mér. Hún læknar sig sjálf þegar hún veikist og hún getur unnið 18 tíma á dag”.  

Engillinn kom nú nær og snerti konuna.  

“En þú hefur gert hana svo mjúka Drottinn“ sagði hann svo.

“Hún er mjúk", svaraði Drottinn, “En ég hef einnig gert hana sterka því þú getur ekki ímyndað þér hvað hún þarf að ganga í gegn um og þola.“
 

Getur hún hugsað?" spurði engillinn. 
 

Drottinn svaraði:
“Hún getur ekki aðeins hugsað heldur einnig rökrætt og staðið í samningum." 

Engillinn snerti vanga konunar....

“Drottinn, það lítur út fyrir að sköpunarverkið leki! Þú hlýtur að hafa lagt of miklar byrðar á hana.”

“Hún lekur ekki....þetta er tár” leiðrétti Drottinn  

“Til hvers er það?" spurði engillinn.
 

Drottinn svaraði:
“Tárin eru hennar leið til að láta í ljós sorg sína, efa sinn, ást sína, einsemd sína, þjáningu sína og stolt sitt.” 

Þetta hafði mikil áhrif á Engillinn sem sagði
„Drottinn þú ert snillingur!
Þú hefur hugsað fyrir öllu. Þessi kona er stórkostleg!" 

Og Drottinn svaraði englinum:
Það er hún svo sannarlega!
Konan býr yfir slíkum styrk að mestu karlmenni undrast hann. Hún tekst á við hvaða vandræði og getur borið þungar byrgðar á herðum sér. Hún hefur í hendi sér hamingju, ást og ætlanir. Hún brosir þegar hana langar að öskra. Hún syngur þegar hana langar að gráta, grætur þegar hún er hamingjusöm og hlær þegar hún er hrædd . 

Hún berst fyrir því sem hún trúir á. Hún berst við ranglæti. Hún tekur ekki „nei“ sem gilt svar þegar hún sér betri lausn. Hún gefur sjálfa sig svo fjölskyldan geti dafnað. Hún fer með vini sína til læknis ef hún óttast um þá.  

Ást hennar er skilyrðislaus. 

Hún grætur þegar börnin hennar eru sigursæl. Hún er glöð þegar vinum hennar gengur vel. Hún gleðst þegar hún heyrir af barnsfæðingum og brúðkaupum. 

Hjarta hennar brestur þegar ættingi eða vinur fellur frá.En hún finnur styrk til þess að takast áfram á við lífið.  

Hún veit að faðmlag og kossar geta læknað brostið hjarta.  

Það er aðeins einn galli á henni, sagði Drottinn að lokum: 

Hún gleymir því hversu stórkostleg hún er... 


Láttu þetta ganga til vinkvenna þinna til að minna þær á hversu stórkostlegar þær eru...sendu þetta líka til karlmanna sem þú þekkir því stundum þarf að minna þá á það líka!!!   

Uppfærsla á veikindunum

Veikt kríliÚfff hvað þessi helgi hefur tekið á.  Viktor Óli er búinn að vera svo fárveikur Frown   Á föstudagskvöldið fór hann hæst uppí 40,8°C, og nóttin var verulega slæm.  Var með um 40 stig alla nóttina, þrátt fyrir stíla......svaf lítið, mókti bara hitamóki Frown   Ekki auðvelt að horfa uppá og geta ekkert gert fyrir þetta kríli Crying
Sl. nótt var skárri......hann náði að sofna í smá tíma inná milli, var með 8 kommur í gærkvöldi en um 4 í nótt komin í 40 gráður aftur.
Hann er kátari núna en í gær, amk ennþá, sem mér finnst frábært, það var voðalega erfitt að sjá hann í móki.  Er líka duglegri að drekka núna.....

Endilega senda honum áframhaldandi batastrauma, maður veit hvað maður verður druslulegur sjálfur af svona hita, hvað þá 8 mánaða barn.

Knús á línuna
Gerða

Veikindi enn og aftur :(

Miðvikudagurinn var ekkert spes heilsulega séð.......var eitthvað svo kalt allan daginn í vinnunni, var með fjólubláa húð og gæsabólur útum allt.  Mældi mig um kvöldið eftir að vera búin að dressa mig uppí náttbuxur og náttpeysu.......38,5.  Vaknaði morguninn eftir, enn með hita en ekki svona agalega kalt þannig að ég fór í vinnuna.  Var með einhverja gubbu yfir daginn en það reddaðist.
Vaknaði svo í morgun með 39 og niðurgang frá helvíti þannig að ég ákvað að vera heima.  Það er auðveldara að hlaupa á klósettið og gubba ef því er að skipta í vinnunni en að eiga það á hættu að gera í brækurnar er allt annað.  Fór með strákana í leiksólann.  Viti menn......um 2 leytið var hringt af Mánaseli, Viktor Óli kominn með 39,5 stiga hita.  Sótti hann og beið til um hálf fimm svo ég kæmist með hann til læknis.  Hann er með roða og vökva í eyrunum....aftur.....en lítið ofan í sér sagði doktor.  Þannig að pústin hans virðast vera að gera eithvað þó mér finnist þau ekki virka rassgat nema rétt eftir að hann fær þau. 
Hann er búinn að vera agalega lítill í sér.......líður mjög illa greinilega.  Er búin að vera að dæla í hann stílum en samt var hitinn 39,8 fyrir klukkutíma síðan Crying
Ég vona svo innilega að þessi /&%/$ pestarfjandi fari sem fyrst og láti okkur vera það sem eftir er, það er komið nóg !!

Yfir & Út !

Kraftur úr kókómjólk ??

Þorsteinn og Matthías vilja ekki meina það.  Það kom auglýsing í sjónvarpinu áðan um kókómjólk......hver kannast ekki við þetta:  Þú færð KRAFT úr kókómjólk !!

Þorsteinn:  "Þetta er bara ekki rétt......maður fær ekkert kraft úr kókómjólk" 
Matthías:  "Konurnar á leikskólanum segja að maður fái ekki kraft úr henni"
Þorsteinn:  "Já maður fær kraft úr venjulegri mjólk og vatni"
Matthías:  "Já og graut !!"
Þorsteinn:  "Það er af því að grauturinn er búinn til úr mjólk !"

Þvílíku pælingarnar stundum LoL

Þetta getum við....

.....margt smátt gerir eitt stórt.  Ég skora á alla sem vettlingi geta valdið að leggja þessari söfnun lið.
Ég votta fjölskyldu og vinum Eiríks og Unnars Rafns mína dýpstu samúð.

mbl.is Söfnun til styrktar fjölskyldu Eiríks Þórðarsonar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Dagurinn í dag.....

.....var eins dauður og hann var líflegur í gær.  Hef eiginlega ekkert að segja þannig séð.....er dead þreytt þannig að ég ætla bara að fara að kúra með strákunum mínum.
Var eitthvað utan við mig í gær og ég gleymdi að setja link á pússl gærdagsins......fáið í staðinn bæði gærdaginn og daginn í dag.  Frétti af því í dag frá einum viðskiptavininum að hún hafi kíkt á bloggið mitt sem hún á víst til (hafði ekki hugmynd um það) og sá þessa pússl linki........og hafði mikið gaman af og mamma hennar líka Smile  Bara gaman að því Smile
Hafið það notalegt elskurnar......það ætla ég að gera Tounge

Tulip Jigsaw Puzzle                    Equinox Jigsaw Puzzle


Vissir þú.................

Flugfélagið American Airlines sparaði 40.000 bandaríkjadali á árinu 1987 með því að sleppa einni ólífu úr hverju salati sem var borið fram á fyrsta farrými.

10% af tekjum rússneska ríkisins fást með vodkasölu

Fyrsta vörutegundin til að vera strikamerkt var Wrigleys tyggjó.

Mörgæsir geta stokkið 2 metra upp í loftið.

Sumar tannkremstegundir innihalda frostlög.

Á hverju ári slasast um 8.000 manns af völdum tannstönglanotkunar.

Ef Bandaríkjamenn myndu minnka kjötneyslu sína um 10% og sparnaðinum yrði varið í hrísgrjón og sojabaunir þá myndi það duga til að brauðfæða 60 milljón manns, sem er fjöldi þeirra sem deyja úr hungri árlega.

Kakkalakkar geta lifað í 9 daga afhöfðaðir en eftir það deyja þeir úr hungri.

Í hverjum þætti af Seinfeld má sjá orðið "Superman" og/eða mynd af ofurhetjunni.

Sum ljón hafa mök meira en 50 sinnum á dag.

Helmingur jarðarbúa er innan við 25 ára.

Snigill getur sofið í þrjú ár samfellt.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Ég heiti...

Gerða Kristjáns
Gerða Kristjáns
"Gættu þess að segja stundum eitthvað fallegt við vini þína, eitthvað sem kemur beint frá hjartanu."

Nafnlausum athugasemdum verður eytt !

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.10.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 4
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband