6.8.2007 | 22:13
Sumarfrí
Jamm, haldiði að gellan sé ekki komin í nokkura daga sumarfrí !! Var að vinna á laugardaginn, en nennti ómögulega að spæna suður eftir vinnu þá um kvöldið þannig að ég lagði af stað á sunnudagsmorguninn. Synir mínir vissu ekki að ég væri á leiðinni, og svipurinn á þeim þegar ég birtist var bara yndislegur, sérstaklega hjá Viktori Óla......horfði fyrst á mig í smá stund og svo kom stærsta bros sem ég hef séð á honum yfir allt andlitið
Alveg yndislegt
Skellti mér svo í morgun hérna inn í Keflavík og lét flétta á mér hárið í svona afrófléttur......með hárlengingu. Þannig að núna er skvísan með sítt hár, pínulitlar fléttur og heljarinnar hausverk hahaha
Enda ekkert skrítið, þetta eru smávegis átök fyrir hársvörðinn.
Síðan á að versla eitthvað áður en maður heldur heim á leið aftur, þarf fyrst og fremst að kaupa mér stöng fyrir sturtuhengið mitt !! Hundleiðinlegt að komast ekki í sturtu standandi öðruvísi en að subba gólfið allt út !
Heyri í ykkur síðar ljúfurnar, adjö í bili

Skellti mér svo í morgun hérna inn í Keflavík og lét flétta á mér hárið í svona afrófléttur......með hárlengingu. Þannig að núna er skvísan með sítt hár, pínulitlar fléttur og heljarinnar hausverk hahaha

Síðan á að versla eitthvað áður en maður heldur heim á leið aftur, þarf fyrst og fremst að kaupa mér stöng fyrir sturtuhengið mitt !! Hundleiðinlegt að komast ekki í sturtu standandi öðruvísi en að subba gólfið allt út !
Heyri í ykkur síðar ljúfurnar, adjö í bili

31.7.2007 | 01:28
Nei fjandinn.....
....nú er það rautt !! Já ekki svart þó svo það hafi svosem ekki munað miklu.......frúin sat á svölunum í sólinni í gær (þ.e.a.s. sunnudag) og las "Viltu vinna milljarð"........og kláraði doðrantinn.....og uppskar mikinn og eldrauðann lit á bringu og handleggi. Andlitið var í stíl framan af degi en skánaði svo og varð fallega bleikt......en bringan....shit og boy sko, þetta er vont !
En það var alveg þess virði samt, veðrið var svooo æðislegt, og ég VARÐ að klára þessa frábæru bók, þið sem hafið ekki lesið hana, endilega drífa í því, hún er frábær
Eftir vinnu í dag kallaði sófinn aðeins á mig, bara pínu sko......og í staðinn er ég andvaka uppí rúmi og klukkan að verða hálf 2 ! Það er svosem í lagi, Josh Groban er hérna með mér að syngja fyrir mig, ekki slæmt að sofna útfrá svona karlmanni ha
Tja já eða röddinni sko hahaha
Merkilegur skratti samt......maður er umvafin fólki nánast allan daginn, en ég held að ég hafi aldrei verið eins einmanna á ævinni, eða eins eirðarlaus
Einhver sem kann lausn á því ? Það er ekki gott að vera einmanna.................er orðin soldið þreytt á þessu
Hafið það gott darlíngs, heyri í ykkur síðar.........
En það var alveg þess virði samt, veðrið var svooo æðislegt, og ég VARÐ að klára þessa frábæru bók, þið sem hafið ekki lesið hana, endilega drífa í því, hún er frábær

Eftir vinnu í dag kallaði sófinn aðeins á mig, bara pínu sko......og í staðinn er ég andvaka uppí rúmi og klukkan að verða hálf 2 ! Það er svosem í lagi, Josh Groban er hérna með mér að syngja fyrir mig, ekki slæmt að sofna útfrá svona karlmanni ha

Merkilegur skratti samt......maður er umvafin fólki nánast allan daginn, en ég held að ég hafi aldrei verið eins einmanna á ævinni, eða eins eirðarlaus

Hafið það gott darlíngs, heyri í ykkur síðar.........
30.7.2007 | 21:25
Fyrstu skrefin
Var að fikta með risastórann vídeóbút og kom honum niður í þetta........er hægt að horfa á þetta ?
Þetta eru ss. fyrstu skref sonar míns sem hann tók í fríinu með pabba sínum úti í Eyjum.......pabbinn á öðrum endanum og Friðþjófur frændi hans á hinum......þessi með plástrana og gifsið

28.7.2007 | 13:03
1 ár síðan....
23.7.2007 | 20:42
Rúmlega.......
.....1200 km sem ég og Árný frænka keyrðum sl. helgi !! Hún var mér stoð og sytta í ferð sem ég VARÐ að fara vestur á firði. Er búin að ganga með í maganum mörg sl. ár að fara vestur og gera mitt í að uppræta viss mál. En hef aldrei haft kjark til þess.......fyrr en nú. Núna hugsaði ég bara: Nei fjandinn, það er bara að reyna, þú færð þá bara skell............þú getur þá amk sagt að þú hafir reynt og verið sátt. Þannig að við fórum.
Komum nú víða við í þessari ferð.......Hólmavík, Súðavík, Ísafjörður, Þingeyri, Hnífsdalur, Bolungarvík, Flateyri og Suðureyri fengu að njóta okkar yndislegs félagsskapar í mislangann tíma þó. Ég gerði það sem ég þurfti að gera á einum af þessum stöðum, og varð sátt. Ég er búin að reyna, búin að brjóta ísinn, núna vona ég bara svo heitt og innilega fyrir alla sem eiga hlut að, að framhaldið verði gott. Ég er sátt
Við áttum griðarstað hjá Gunnu frænku á Ísafirði, vorum þar í mjög góðu yfirlæti, takk kærlega fyrir okkur Gunna
Við kíktum líka á fleiri fjölskyldumeðlimi sem ég hef ekki séð í skrilljón ár......Marý og Bjarni fengu okkur í heimsókn, sem og Anna Kata og hennar fjölskylda.......bara gaman að því
Síðan fórum við sömu leið til baka á sunnudeginum.........vorum eins og verstu túristar á bakaleiðinni, stoppandi alls staðar að taka myndir og svoleiðis nokk. Við urðum fyrir árás á einum staðnum. Við vorum stopp útí kanti að taka myndir uppí hlíðina sem var mín megin í bílnum, ss. farþegamegin í þetta sinn. Ég skrúfa niður rúðuna og geri mig líklega til að smella af, þegar Árný gargar á mig: LOKAÐU !!!!!!!!!!!!!!!! Ég hrökk auðvitað við og spurði af hverju........ÞAÐ ER GEITUNGUR ÞARNA !!! Svo bara birtist þetta líka flykki beint fyrir framan nefið á mér.....á leiðinni inn í bílinn !!! Árný byrjar að draga upp rúðuna (stjórntæki líka hennar megin) og opnar hurðina sína í leiðinni......svona til að stökkva út ef kvikindið ógurlega skyldi voga sér nærri ! Ég greip það næsta sem ég fann til að berja henni frá........kexpakki varð fyrir valinu........og reyni eitthvað að stugga við henni. Henni leist ekkert á kexið og flaug innan á framrúðuna. Árnýju fannst ég þá vera eitthvað lengi að þessu, reif af mér kexpakkann og skellti honum á fluguskömmina. Ég var með hroll ofan í ra$$ þegar ég var að henda þessu ógeði útúr bílnum ! Samt tókum við myndirnar......og rukum svo í burtu ! Tja......svona eins og hægt er að rjúka í burtu af malarvegi !
Vorum þreyttar, en sáttar þegar við komum heim í gærkvöldi
Takk æðislega Árný fyrir að koma með mér......já eða leyfa mér að fljóta með.........ég væri ennþá að spá í Hvað ef.........
Heyri í ykkur síðar darlings........
Kv. Gerða......sátt við lífið og tilveruna
Komum nú víða við í þessari ferð.......Hólmavík, Súðavík, Ísafjörður, Þingeyri, Hnífsdalur, Bolungarvík, Flateyri og Suðureyri fengu að njóta okkar yndislegs félagsskapar í mislangann tíma þó. Ég gerði það sem ég þurfti að gera á einum af þessum stöðum, og varð sátt. Ég er búin að reyna, búin að brjóta ísinn, núna vona ég bara svo heitt og innilega fyrir alla sem eiga hlut að, að framhaldið verði gott. Ég er sátt

Við áttum griðarstað hjá Gunnu frænku á Ísafirði, vorum þar í mjög góðu yfirlæti, takk kærlega fyrir okkur Gunna

Síðan fórum við sömu leið til baka á sunnudeginum.........vorum eins og verstu túristar á bakaleiðinni, stoppandi alls staðar að taka myndir og svoleiðis nokk. Við urðum fyrir árás á einum staðnum. Við vorum stopp útí kanti að taka myndir uppí hlíðina sem var mín megin í bílnum, ss. farþegamegin í þetta sinn. Ég skrúfa niður rúðuna og geri mig líklega til að smella af, þegar Árný gargar á mig: LOKAÐU !!!!!!!!!!!!!!!! Ég hrökk auðvitað við og spurði af hverju........ÞAÐ ER GEITUNGUR ÞARNA !!! Svo bara birtist þetta líka flykki beint fyrir framan nefið á mér.....á leiðinni inn í bílinn !!! Árný byrjar að draga upp rúðuna (stjórntæki líka hennar megin) og opnar hurðina sína í leiðinni......svona til að stökkva út ef kvikindið ógurlega skyldi voga sér nærri ! Ég greip það næsta sem ég fann til að berja henni frá........kexpakki varð fyrir valinu........og reyni eitthvað að stugga við henni. Henni leist ekkert á kexið og flaug innan á framrúðuna. Árnýju fannst ég þá vera eitthvað lengi að þessu, reif af mér kexpakkann og skellti honum á fluguskömmina. Ég var með hroll ofan í ra$$ þegar ég var að henda þessu ógeði útúr bílnum ! Samt tókum við myndirnar......og rukum svo í burtu ! Tja......svona eins og hægt er að rjúka í burtu af malarvegi !

Vorum þreyttar, en sáttar þegar við komum heim í gærkvöldi

Heyri í ykkur síðar darlings........
Kv. Gerða......sátt við lífið og tilveruna

17.7.2007 | 22:20
Jæja já.....
.....þið segið allt þetta. Ballið á laugardaginn var bara hörku skemmtilegt skal ég segja ykkur. Vorum saman nokkrar stelpurnar og tjúttuðum helling, drukkum öl og svo meira öl, tjúttuðum meira, drukkum meira öl, og tjúttuðum meira, og skemmtum okkur bara fínt með fullan bjór af tösku (innanbúðarhúmor sko). Skreiddumst svo hingað heim ég og Árný frænka og sofnuðum værum svefni. Ég er ekki frá því að við höfum verið oggupínkulítið rykugar í hausnum þegar við vöknuðum á sunnudagsmorguninn hahaha
Fórum uppí sveit og tíndum egg og fórum svo í mat til Höllu frænku, ofsalega gott. Vinna í gær að sjálfsögðu og svo aftur matur hjá Höllu frænku, grill í þetta sinn. Vinna í dag, framköllun eftir vinnu (litun á augnhárum og svoleiðis trall) og svo matur hjá Sollu frænku. Bara snilld svona matarboð, þá kannski drullast maður til að éta almennilegan mat.
Síðan er frmaundan bara vinna og vinna meira........og smá skreppiferð um helgina með Árný frænku, segi síðar frá því.
Kem ekki til með að blogga mikið á næstunni, það er alltaf það sama að gerast þannig séð, sofa, vinna, sofa, vinna.......sakna strákana minna

13.7.2007 | 23:45
Föstudagurinn 13.
Og ég LOKSINS komin í helgarfrí ! Er búin að vinna núna 12 daga straight og var orðin ansi þreytt í restina á vaktinni í dag hahaha
En samt gaman að þessu, það er búið að vera svo mikið að gera, fullt af ferðafólki sem stoppar hjá okkur og "pulsar" sig upp.....já eða niður
Svo er Húnavakan byrjuð og stendur yfir helgina, Bylgjan er á svæðinu og dansiball annað kvöld..........ég skrapp í vínbúðina eftir vinnu og ætla að fá mér nokkra kalda annað kvöld og skella mér á ballið
Hef ekki farið á svoleiðis síðan ég man ekki hvenær hahaha
Hef heyrt af strákunum mínum nánast daglega og þeir hafa haft það alveg meiriháttar gott í Eyjum, eru að fara heim á morgun með pabba sínum. Mig langar svooooo að fara suður og knúsa þá í ræmur, en það verður að bíða betri tíma.
Hafið það gott elskurnar...........adjö !

Svo er Húnavakan byrjuð og stendur yfir helgina, Bylgjan er á svæðinu og dansiball annað kvöld..........ég skrapp í vínbúðina eftir vinnu og ætla að fá mér nokkra kalda annað kvöld og skella mér á ballið

Hef heyrt af strákunum mínum nánast daglega og þeir hafa haft það alveg meiriháttar gott í Eyjum, eru að fara heim á morgun með pabba sínum. Mig langar svooooo að fara suður og knúsa þá í ræmur, en það verður að bíða betri tíma.
Hafið það gott elskurnar...........adjö !
4.7.2007 | 22:06
Ein í kotinu......
Jamm og já........við strákarnir fórum suður á föstudaginn, þeir í sumarfrí til pabba síns og ég í brúðkaup á laugardaginn hjá Önnu frænku og Óla. Alveg yndislegur dagur, veðrið alveg súper, veislan frábær og allt alveg meiriháttar. Fór heim seinnipartinn á sunnudaginn eftir að hafa kíkt aðeins á útsölur........ekkert mikið samt
Matthías hringdi í mig í gær, þeir eru í heimsókn með pabba sínum í Eyjum, og þau fóru í fiskasafnið að skoða og það fannst honum frábært. Hann sá uppstoppaða seli, uppstoppaða refi og uppstoppaða steina !!! Það sagði hann ömmu sinni amk þegar þau komu heim hahaha
Svo hringdi Laugi í dag og sagði mér að Viktor Óli hefði labbað 5-6 skref alveg aleinn og sjálfur og óhikað !! Hann var ekki farinn að reyna þetta hér, ekkert labbað með eða neitt. Ég var auðvitað ferlega ánægð með það en skúffuð yfir að hafa misst af því
En það verður víst ekki á allt kosið.
Læt þessu lokið í bili, er þreytt og ennþá þreyttari......ég held að allir sem voru á leið á Akureyri í dag á pollamót, hafi stoppað í Skálanum hjá okkur í pylsuát !!

27.6.2007 | 19:45
LOKSINS !!!!!!!!!!!!!!!!
YYYYYYEEEEEEEEESSSSSSSSSSSSSSSS !!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!!
LOKSINS er ég búin með snjókallana mína !! Ef ég hefði haldið mér að verki þá væru þeir löngu búnir en svona er þetta bara..........en núna eru þeir TILbúnir

Almennt raus | Breytt s.d. kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (21)
20.6.2007 | 23:13
vá, meiri gæsahúð !!
14 ára gamall drengur sem syngur eins og engill, ég fékk sko gæsahúð all over !!
http://www.youtube.com/watch?v=o0XjsEtrLJg&mode=related&search=

Youtube | Breytt s.d. kl. 23:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (6.8.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar