Leita í fréttum mbl.is

Muffins anyone ??

MuffinsFékk þá snilldarhugmynd í gær að baka muffins í dag, vígja bakaraeinkennin í fína ofninum sem er hérna.  Árný kom um hálf fjögur og ég skellti mér í búðina til að kaupa það sem uppá vantaði.  Þar sem sonum mínum finnst svona voðalega gott og mig grunaði að Goggi (já og Árný líka) myndu eitthvað smakka á þessu, þá ákvað ég að gerast stórtæk og gera þrefalda uppskrift.........EKKI sniðug hugmynd sko !  Amk ekki ef maður ætlar að koma öllu draslinu fyrir í hrærivélarskál af gamalli Kenwood Chef !  Þegar ég var búin að setja allt hráefnið í NEMA hveitið, þá var uþb <---------> svona hátt uppað brúninni.  Þannig að hveitið fór í skömmtum í dolluna og handhrært............ekki spennandi kostur, þannig að við verðum bara með minni græðgi við næsta bakstur Tounge
En annars smakkaðist þetta alveg meiriháttar vel, með ískaldri mjólk Grin

Meistari Matthías átti alveg súper brilliant gullkorn á meðan ég var að baka.......hann var eins og grár köttur í kringum mig og spurði að hinu og þessu alveg hægri vinstri......og sumu oftar en einu sinni og eitthvað var þráðurinn orðinn í styttri kantinum hjá mér því ég svaraði honum eftir enn eitt "Af hverju........?"........"af því að ég sagði það!"
Hann verður ferlega sár og segir svo við mig með augun fljótandi í tárum:
"Mamma þú ert pirruð við mig"......ég sagðist ekkert vera pirruð við hann, en ég væri það stundum þegar hann væri að spyrja svona oft sömu spurninganna.  Þá segir hann:
"Mamma, ég verð sár í hjartanu þegar þú ert pirruð við mig"
Hann var svooooooo einlægur og þetta stakk, beint í Heart

Hafið það gott í kvöld elskurnar Smile

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Árný Sesselja

Takk fyrir kökurnar sem ég er að borða.......rosalga góðar namm namm

Árný Sesselja, 6.5.2007 kl. 20:48

2 Smámynd: Anna Gísladóttir

Hmmm eitthvað er hugskeytið lengi á leiðinni .... ég er enn að bíða eftir mínu muffins !

Anna Gísladóttir, 6.5.2007 kl. 23:03

3 identicon

Jahá, ég hefði nú alveg getað gúffað í mig nokkrum stykkjum. En læt mér bara nægja þetta CornFlakes hérna, enda miklu hollara. 

Mundu það að Diet er bara Die með t í endann.. Hakkið í ykkur möffins....

kv Don Tidz 

Don Tidz (IP-tala skráð) 7.5.2007 kl. 06:08

4 Smámynd: Kolla

Börn eru svo mikil krútt

Kolla, 8.5.2007 kl. 19:51

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég heiti...

Gerða Kristjáns
Gerða Kristjáns
"Gættu þess að segja stundum eitthvað fallegt við vini þína, eitthvað sem kemur beint frá hjartanu."

Nafnlausum athugasemdum verður eytt !

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 14
  • Frá upphafi: 130482

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 14
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband