4.7.2007 | 22:06
Ein í kotinu......
Jamm og já........við strákarnir fórum suður á föstudaginn, þeir í sumarfrí til pabba síns og ég í brúðkaup á laugardaginn hjá Önnu frænku og Óla. Alveg yndislegur dagur, veðrið alveg súper, veislan frábær og allt alveg meiriháttar. Fór heim seinnipartinn á sunnudaginn eftir að hafa kíkt aðeins á útsölur........ekkert mikið samt
Matthías hringdi í mig í gær, þeir eru í heimsókn með pabba sínum í Eyjum, og þau fóru í fiskasafnið að skoða og það fannst honum frábært. Hann sá uppstoppaða seli, uppstoppaða refi og uppstoppaða steina !!! Það sagði hann ömmu sinni amk þegar þau komu heim hahaha
Svo hringdi Laugi í dag og sagði mér að Viktor Óli hefði labbað 5-6 skref alveg aleinn og sjálfur og óhikað !! Hann var ekki farinn að reyna þetta hér, ekkert labbað með eða neitt. Ég var auðvitað ferlega ánægð með það en skúffuð yfir að hafa misst af því En það verður víst ekki á allt kosið.
Læt þessu lokið í bili, er þreytt og ennþá þreyttari......ég held að allir sem voru á leið á Akureyri í dag á pollamót, hafi stoppað í Skálanum hjá okkur í pylsuát !!

Flokkur: Almennt raus | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 4
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Uppstoppaðir steinar já!! LOL þessi drengur!!!!
Hér hífir sig ungur drengur upp við hvað sem hönd nær að festa í og stendur valtur á fótum voða montinn yfir sjálfum sér... sleppir svo annari hendi... riðar til og búmms.. beint á bossann (þegar vel fer). Marblettatímabilið greinilega byrjað hehe
Saumakonan, 4.7.2007 kl. 22:22
Flott sagt hjá saumakonunni og er sammála. En leitt að þú skildir missa af þessu
Kristín Katla Árnadóttir, 5.7.2007 kl. 00:31
kíki á þig helgina 20-22 júl verð á Húnavöllum á ættarmóti
Gunna-Polly, 6.7.2007 kl. 18:07
kvitt
Margrét M, 11.7.2007 kl. 15:54
Yndisleg færsla hjá þér. Knús til þín
Ester Júlía, 11.7.2007 kl. 21:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.