Leita í fréttum mbl.is

Ég blogga......

......í skorpum.....stundum virðist bara ekki vera neitt markvert að segja frá og til hvers að vera að berja hausnum við lyklaborðið eins og rjúpan við staurinn, til þess eins að koma einhverju ómarkverðu frá sér ?  Dagarnir virðast bara stundum allir vera eins........vakna, koma skrílnum á lappir, í leikskólann, fara að vinna, sækja liðið eftir vinnu, dunda eitthvað inná milli húsverka, éta, koma minnsta strumpnum í svefn, berjast við að ná hinum strumpunum inn og koma þeim í bælið.  Vilja lenga daginn til að eiga meiri "quality" time fyrir sjálfan sig og lufsast alltof seint að sofa af því að maður tímir ekki að klippa á þennan tíma.

Síðastliðin vika hefur verið ágæt, Linda Kristín kom hingað á sunnudaginn fyrir rúmri viku og hefur haft það ágætt inná milli þess sem hana langar að fara heim aftur, er með heimþrá Undecided   Þau systkynin hafa unað sér vel saman, lítið um árekstra so far......og vonandi helst það þannig Smile
Annars er ég að mygla akkúrat núna...........stjörnuspáin mín fyrir daginn hljómar svo:

Naut: Heppnin eltir þig á röndum, hvort sem þú tekur áhættur eða ekki. Þar sem þú virðist ekki geta tapað, skaltu brosa breitt, breiða út faðminn og taka á móti því sem kemur.

Það var þá heppnin !!  Matthías er búinn að vera veikur síðan á laugardaginn.  Fékk hita, ældi eins og múkki og var "ofboðslega illt í heilanum" og í augunum þegar hann lokaði þeim.  Drengurinn að farast úr höfuðverk Crying   Hann var alltaf að dotta á sófanum og grét uppúr svefninum af verkjum.  Á mánudaginn fór ég með hann til læknis og hann er skoðaður vel í bak og fyrir, og ekkert óeðlilegt að sjá þannig séð, hann hefur bara fengið slæma flensu.  Og var orðinn nokkuð hress þannig að ég ætlaði að fara með hann á leikskólann í gær.  En neinei, um nóttina svaf hann ferlega illa, grét mikið uppúr svefninum undan heilaverk og var illt í maganum.  Seinnipartinn í gær er hann aftur kominn með hita og fingurnir hans orðnir þrefaldir.  Eða þ.e.a.s. vörturnar á puttunum.  Hann er með 3 vörtur á fingrunum og þegar hann fór í 5 ára skoðun um daginn var sett eitur á þær og plástur yfir, plásturinn var svo tekinn um kvöldið og eitrið þvegið af og ekkert mál........læknirinn sagði að það þyrfti kannski að endurtaka þetta, sérstaklega með stærstu vörtuna sem er á þumlinum.  Hinar 2 voru svona á byrjunarstiginu.  Þannig að þegar ég fór með hann á mánudaginn lét ég eitra þetta aftur.  Sama mynstur, plástur á, taka hann af um kvöldið og þvo.  Nema að í þetta sinn eru vörturnar orðnar þrefaldar að stærð, eitthvað jukk vætlar úr einni þeirra og roði og hiti í þeim.....og hann finnur svo til í þessu Frown   Þannig að við erum ennþá heima, honum illt í fingrunum og maganum, hundleiður á að hanga inni í þessu æðislega veðri sem er búið að vera, er ekki alveg að fatta af hverju hann má ekki fara út að leika sér með krökkunum, og eigum tíma aftur hjá lækni í dag kl. 2.  Hann komst ekki á trallið á 17. júní en systkyni hans hugsuðu þó fallega til hans og færðu honum ferlega flotta spiderman gasblöðru sem er í dag alveg að syngja sitt síðasta Wink

Viktor Óli átti líka sína seremóníu um helgina og fannst útskýring á því á sunnudaginn, fjórða tönnin er komin.

Þannig að........þetta breiða bros og faðmlag og allt hitt kjaftæðið sem stjörnuspáin röflar um...........bite me !!

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristín Katla Árnadóttir

ÆI elsku Gerða mín það er nóg að gera hjá þér vonandi lagast drengurinn fljótt.

Kristín Katla Árnadóttir, 20.6.2007 kl. 10:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Ég heiti...

Gerða Kristjáns
Gerða Kristjáns
"Gættu þess að segja stundum eitthvað fallegt við vini þína, eitthvað sem kemur beint frá hjartanu."

Nafnlausum athugasemdum verður eytt !

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku: 4
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 3
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband