17.3.2007 | 11:07
Mig langar....
- Að fara aftur til Afríku, eiga allan tíma heimsins og skoða allt sem mig langar að sjá.
- Að fara til sólarlands.......liggja í sólbaði á hvítri strönd og slaka á.
- Að þurfa aldrei að hafa áhyggjur af neinu.
- Að eiga sjálfhreinsandi heimili.....og þvottavélmenni sem brýtur saman þvottinn fyrir mig.
- Að hitta ömmu mína sem ég hef ekki séð svo lengi, og afa minn sem ég hef ekki séð enn lengur.
- Að hitta bræður mína sem búa í Afríkunni og ég hef bara séð 2 þeirra einu sinni, þann yngsta aldrei.
- Að vera hamingjusöm og elskuð.
- Að geta þurrkað út særindin sem ég hef valdið fólki í kringum mig.
- Að geta veitt börnunum mínum allt sem þau þurfa, alltaf.
- Mig langar að gera svo margt.........
Flokkur: Almennt raus | Breytt s.d. kl. 11:11 | Facebook
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Jamm ef maður bara gæti, það væri frábært
Kristberg Snjólfsson, 17.3.2007 kl. 11:43
Elsku dúllan min, skil þig svo vel.
flakkari (IP-tala skráð) 17.3.2007 kl. 12:46
Skil þig svo vel, bloggvinkona. Við hjónaleysin vorum einmitt að ræða hvað það væri íronískt, að nú þegar við erum búin að koma okkur vel fyrir og höfum það tiltölulega gott fjárhagslega, þá eigum við ekki nógu margar frídaga til að geta ferðast þegar okkur hentar. Alltaf þessi brjálaða vinna á manni, að maður nær ekki að njóta lífsins og sinna nánustu eins og maður ætti að vera að gera.
Hugarfluga, 17.3.2007 kl. 13:18
Æji já hvað ég skil þig mín kæra, vona að heilsan á bænum sé orðin betri !
bara Maja..., 17.3.2007 kl. 14:04
jahá, þetta er nú enginn smá listi. En, meirihlutann er vel hægt að framkvæma með góðri skipulagningu og réttri príoriteringu. Þá er ég auðvitað ekki að tala um þvottavélmennið....
TIDDI (IP-tala skráð) 17.3.2007 kl. 17:21
Falleg upptalning
Ester Júlía, 17.3.2007 kl. 20:28
yndislegt
Margrét M, 19.3.2007 kl. 13:08
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.